þriðjudagur, nóvember 01, 2005

Mannlegt eðli.......

Stundum er gott að gefa sér tíma til að rannsaka mannlegt eðli. Ég hef síðustu daga - og aðallega í gær - séð hluti sem ég hélt að væru ekki til.
Þannig er að ég var að fylgjast með fólki - sem kann ekki neitt í svokallaðri sjálfshjálp - missa sjálfsvirðinguna - á mjög áberandi hátt. Ég var, ásamt systur og mágkonum, heima hjá pabba að fylgjast með ættingjum fyrrverandi konu pabba, sækja dót (sem pabbi hafði auðvitað borgað) sem "tilheyrði" móður þeirra. Þarna kom þetta fólk - eins og hrægammar til að sækja dótið og barðist við að missa ekki af neinu. Sem betur fer, var lögfræðingur þeirra á svæðinu, til að fylgjast með að ekkert yrði tekið sem ekki tilheyrði þeim. Stoppa varð einn sem gekk um og þvældist á staði sem hann hafði ekkert að gera á. T.d. var viðkomandi kominn inn á skrifstofuna hans pabba, en var auðvitað vísað út - kurteisislega.
Það sem "toppaði" allt fyrir mér - var það að þau skildu taka rúmið hans pabba (sem hann hafði auðvitað borgað - eins og allt annað). Þeim tókst auðvitað ekki að taka þetta ferlíki í sundur - án þess að brjóta það - sem var lýsandi dæmi. Það brotnaði fleira í flutningnum. Því eins og sagt er: Illur fengur - illa forgengur..............
Ég frétti síðan - frá húsvarðarfrúnni - að þetta sjálfsvirðingarlausa fólk - ætlaði ekkert að nota rúmið, þau ætluðu alltaf að gefa það í Góða hirðinn. Var það nauðsynlegt að brjóta upp venjur hjá gömlum manni með heilarýrnun......... ég bara spyr?

Eins og ég benti lögfræðingnum á - þá tekur ekki einu sinni "skattmann" rúm af fólki - og myndi maður kalla skattinn, hrægamm....... blygðunarlaust!

Gott að vera laus við þetta pakk - og nú er ég kurteis.............

2 Comments:

At 04 nóvember, 2005 22:25, Blogger Fríður said...

Þetta fólk er bara svo vitlaust.. þeirra rétta eðli kemur þarna í ljós... Þeim verður refsað síðar ég efast ekki um það !!!

Sjáðu bara hvað við erum heppin að vera ekki svona vond eins og þau... vonandi að þeim líði betur núna, enda ekkert betra en að taka dót af gömlu fólki og raska öllu hjá þeim.. urrrrrrrr

Ég var búin að skrifa heila ræðu í viðbót en hún var ritskoðuð af mér og verður því ekki birt hérna...

 
At 08 nóvember, 2005 13:42, Blogger Fríður said...

Já hvernig væri það.... HAHAHAHAHAHAHAHA allir saman nú, einn, tveir þrí.....

 

Skrifa ummæli

<< Home