þriðjudagur, desember 13, 2005

Mer þykir svo vænt um.........

Guðný Helgu vinkonu mína. Henni datt nefnilega það snjallræði í hug (þ.e. eftir að ég benti henni á það) að setja vinkonu sína inn sem link á bloggið sitt. En hún er svo mikil vinkona að hún vissi ekki einu sinni að MÍN var búin að blogga í rúmlega eitt ár og svo "fattaði" HENNAR allt í einu "upp á" hvað þetta var sniðugt - en vissi ekki af vinkonu sinni "the bloggmaster".

En hvað með það - mér þykir samt vænt um hana og hún er líka verðlaunuð fyrir fegurð!!

En ekki spyrja hana af hverju ég heiti Ingibjörg "dúfukúkafýla" - það gleður hennar litla músarhjarta þegar einhver lendir í vandræðum og hún getur endalaust sagt sögur af öðrum - og hlær oftast svo mikið sjálf að hún nær ekki að segja sögurnar.....

Henni finnst hún fyndin!!!

2 Comments:

At 13 desember, 2005 17:19, Blogger GHH said...

Ég ER fyndin... og mér þykir líka vænt um þig. Smúts!

 
At 16 desember, 2005 16:49, Blogger Monika said...

Mér finnst þið báðar vera ótrúlega fyndnar og skemmtilegar, ekkert smá gaman að fylgjast með ykkur, Heyrist svo mikið í ykkur "röddin i gegn" ..hmmm og Guðný þú kemur svakalega sterk inn :)

 

Skrifa ummæli

<< Home