miðvikudagur, desember 28, 2005

Milli-jola-og-nyarstiminn........

gengur á með éljum..... eins og það sé eitthvað nýtt!
Nú erum við hjónin búin að taka til í bílskúrnum, þannig að nú verður hægt að byrja að setja kassana saman til að pakka ofan í þá. Það er ótrúlegt hvað er hægt að henda miklu, sérstaklega þegar við erum nýbúin að fara yfir bílskúrinn og henda a..m.k. 3 kerrum af drasli!!
Ég er oft búin að segja - við flytjum með okkur kompur - pælið í því - maður pakkar drasli í kassa - setur í kompuna eða bílskúrinn, opnar kassana aldrei - og flytur þá með sér milli heimila...... er eitthvað rugl í gangi?

En það gengur vel að pakka - flest fer í kassa og í geymslu - en sumt fær að fara í sólina á Florida...... heppni!

1 Comments:

At 29 desember, 2005 11:21, Blogger proppe said...

Ok ok ok ....Þið megið örugglega koma og taka til í ÖLLUM geymslunum í M8 ef þið komist í ham.

 

Skrifa ummæli

<< Home