föstudagur, september 08, 2006

Haustið er að koma......

Fallegasti árstíminn er að koma. Litirnir sem koma með haustinu, finnast mér fallegastir af öllum. Tími til að kveikja á öllum kertunum sem ég er búin að sanka að mér: Ilmkerti - af öllum stærðum og gerðum.
Ég ætla að nota tækifærið og klára söguna mína - hún þarfnast núna bara að verða skrifuð..... Allar hugmyndir eru tilbúnar (eða að mestu leiti) og nú er bara að klára að skrifa.
Ég er svo blessunarlega stolt af systkinum mínum - þau eru frábær - og við öll til samans erum auðvitað snillingar. Ef þið trúið mér ekki - spurjið þau bara!

3 Comments:

At 08 september, 2006 19:17, Blogger GHH said...

Hjördís - ert þú snillingur?

 
At 10 september, 2006 17:19, Blogger Fríður said...

Ekki spurning.. þau öll

Ekki furða að maður sé svona velheppnaður sjálfur enda fæddur inní þessa snildar famelíu :)

 
At 11 september, 2006 13:10, Anonymous Nafnlaus said...

Sammála þessu með snillingana!!! H:)

 

Skrifa ummæli

<< Home