fimmtudagur, október 26, 2006

Skammdegisskornir........



Ég hefði ekki átt að vera svona grimm gagnvart gömlu skammdegisskónum mínum. Nú er aftur komið skammdegi og ég búin að senda gömlu skóna til Guðs........

Fann þessa skó á síðu þar sem þeir unnu "ljótu skór vikunnar" um daginn. Þetta er ekki alveg það sem ég er að leita að - heldur skór sem geta labbað í snjó, slyddu, rigningu og drullu - með mér og Prins (úlfhundinum).

Ef einhver getur gefið upplýsingar um það hvar þannig skó er að finna - vinsamlegast látið mig vita.

Þeir (skórnir) mega gjarnan vera loðfóðraðir - svo tásurnar mínar verði ánægðar - og heitar!

5 Comments:

At 29 október, 2006 09:05, Anonymous Nafnlaus said...

Þessir skór eru yfirnáttúrulega ljótir...

Þú og þínar táslur ættuð að athuga með að fá ykkur Timberland skó. Þeir eru góðir og hlýjir...ég gæti líka prjóna eitthvað hlýtt og mjúkt fyrir táslurnar þínar....

En...mér þykir of vænt um þig til að gera þér það ;)

 
At 30 október, 2006 11:39, Anonymous Nafnlaus said...

Sælar....
það sannast hér og nú að maður "má" skipta um skoðun...eða þú sért "viljandi" farin að gleyma..veit ekki hvort ég eigi að upplýsa það en ef mín "arnarsjón" er ekki að stríða mér þá eru þetta nú BARA nákvæmlega eins og skórnir sem sást glitta í undan kjolnum þegar þú sagðir "já" við Grella...en sem betur fer lærum við af mistökum okkar og þú ert vonandi búin að losa þig við parið bleika.
Þar sem minnst er á skó..þá verður maður að taka þátt í umræðunni.
Sko...það er hægt að fá loðfóðruð gúmmístígvél fyrir lítin pening í Europrís....er samt ekki alveg að sjá þig í svoleiðis..maður verður að halda grace..þó maður sé að labba úti með hundinn, annars er soldið smart búð á Rauðarástíg sem heitir Trippen (www.trippen.is) og þú yrðir alveg "hip&kúl" í svoleiðis....

Gaman að lesa þig hér á síðunni mín kæra þó svo þú sér stundum löt að skrifa ;-)

kv. Hjördís Selma

 
At 30 október, 2006 13:46, Blogger Ingibjörg góða! said...

En það eru nákvæmlega loðfóðruð gúmmístígvél sem ég er að leita að. Skilgreiningin á skammdegisskóm er:

Skórnir eru svo ljótir að þeir þola illa dagsbirtu, notist aðeins í myrkri þar sem þeir eiga það til að krumpast óþæginlega í birtu.

"Dúa" notar samt sína daglega........

 
At 30 október, 2006 18:37, Anonymous Nafnlaus said...

þú veist afhverju hjónin á "stökustað" eru svona rosalega hrifinn af sínum skóm....jú eins og okkur varð tíðrætt um í bíltúrnum góða þá eru bússurnar svo góðar því hægt er að tvímenna í hvora bússuna fyrir sig....meee!
Kv. HS

 
At 31 október, 2006 12:48, Anonymous Nafnlaus said...

Ég brá nú útaf vana mínum í sambandi við skammdegisskó Ingibjörg mín!!! Er búin að versla mér GULL-MOONBOOTS Fra Victoria´s Secret og nú bíð ég eftir sendingunni!!! Ég NEITA alfarið að vera í svörtum lengur og ætla að storka helvítis skammdeginu með ´því að vera í GULL ÚLPU og þessum GULLSKÓM í slyddunni og krapinu í des og jan!!! Verð eins og NEONLJÓS í bænum!!! hahahahhaha!! Gott á skammdegið!!! þín stórasystir H:)

 

Skrifa ummæli

<< Home