þriðjudagur, október 31, 2006

Skornir fundnir........

ég fann loksins skammdegisskó. Þeir biðu alveg rólegir eftir mér í verslun í Kringlunni, svartir og loðfóðraðir. Þeir eru algjörir torfæruskór, upphækkaðir og með "muddera"....... Meira að segja innbyggðir mannbroddar.
Ég vil taka það fram að skórnir eru mínir og verða ekki lánaðir (frekar en gítarinn hennar Hjördísar systur) ekki einu sinni gegn vægu gjaldi.
En ég er tilbúin að gefa upplýsingar um hvar hægt er að nálgast svona tryllitæki!!

1 Comments:

At 03 nóvember, 2006 23:27, Blogger GHH said...

Ertu samt til í að fórna skammdegisskónum fyrir lúkkið á Gogga Mæ tónleikunum? Ef þú ert þá í vandræðum með í hverju þú átt að fara þá er Hjödda stóra sys örugglega til í að lána þér gull-geimgallann...

 

Skrifa ummæli

<< Home