miðvikudagur, nóvember 29, 2006

Duglega Dísa.......

Ég hef tekið ákvörðun um að verða "Duglega Dísa" - byrjuð í nýrri vinnu, er byrjuð í ræktinni og fór meira að segja í Blóðbankann í morgun og lagði inn...... Hvað vill fólk hafa það betra.

Er að vanda mig í að detta ekki í meðvirkniköst - og það gengur ágætlega. Fyrir suma gæti virst eins og ég væri fúl - en það tekur bara svona á mig að vera ekki að gera "heiðarlegar" tilraunir til að breyta öðrum. Það er nefnilega svoldið síðan að ég fattaði að það gengur ekki. Fólk má bæði gera eins og það vill - og hafa sjálfstæðar skoðanir. En það er ekkert mjög langt síðan að ég lærði - að ég má það líka þ.e hafa skoðanir og gera það sem ég vil.

Stefni á bústaðinn um helgina - ég og Perlan - og auðvitað Plinsi ofurhundur.....

Sweeeet............

4 Comments:

At 29 nóvember, 2006 13:21, Anonymous Nafnlaus said...

Veiveivei.....mamma mín duglegust!!!!
Já það verður voða kósí hjá okkur - á samt eftir að tala við díönu þjálfara en það hlýtur að reddast:):)
Koss og knús til mömmslu:#:#:#

 
At 30 nóvember, 2006 08:24, Blogger Fríður said...

Ég er svo stolt af þér... *koss*

Minns fór einmitt í tíma hjá einhverjum útlenskum gaur sem að er að kenna "Jú jitsú" og ég var að uppgötva nýja vöðva í líkamanum sem að ég vissi ekki að væru til... áááááiiiiii...

Við frænkurnar verðum flottasta um jólin held ég svei mér þá !!

 
At 01 desember, 2006 10:50, Anonymous Nafnlaus said...

Ég tala en þú gerir.... fulllt af Rós"um til þín....Þú ert mín fyrirmynd :)svooooo dugleg!!!!!

 
At 01 desember, 2006 11:04, Anonymous Nafnlaus said...

og Gott KARMA stelpa þetta með blóðbankann!!!

 

Skrifa ummæli

<< Home