mánudagur, desember 04, 2006

Músin sem læddist - og hvarf svo.......

Ég var send í Húsasmiðjuna í Borgarnesi á laugardaginn var. Þar átti ég að versla músagildru - til að leggja fyrir Guðfinnu "Fuffu" hagamús - sem ákvað af skiljanlegum ástæðum - að flytja í litla útihúsið við sumarbústaðinn yfir veturinn.
Við hjónin erum ekki alveg sammála - þegar mýs eru annars vegar, ég vil gefa þeim að borða - en Grétari finnst þær vera hin verstu skaðvaldar. Það er gott að vera ósammála stundum.

Ok - ég fann músagildru - sem veiðir mýs - en drepur þær ekki þ.e. - ég gat boðið Fuffu í mat og sleppt henni svo út úr "matsalnum" eftir að hún kláraði harðfiskinn....... En - málið er - annað hvort er Fuffa mjög gáfuð - eða hún fór í helgarfrí! Hún lét ekki sjá sig - hafði engan áhuga á harðfisk - og ég er frekar óhress með hana. Núna er hún orðin frekar matvönd - eða bætt gríðarlega við greindarvísitöluna......... Kemur í ljós - kannski um næstu helgi - ef ég kemst uppeftir til að athuga með hana. Ég varð nefnilega svo pirruð á henni - að ég skildi eftir "matsalinn" að vísu með næringu - og verð bara að vona að hún hafi rænu á að spara við sig matinn, alla vega þangað til að ég kemst aftur uppeftir til að "tjékka" á henni.

Prins lét þetta allt fram hjá sér fara.... Hann hitti leikfélaga - íslenskan hund - og þeir náðu að gera heiðarlegar tilraunir til ýmiskonar slagsmála og gagnkvæmrar "misnotkunar".....
En við Hjördís Perla komumst enn og aftur að því að Prins verður seint talinn mikill "varðhundur". Félaginn kom og spurði eftir honum eftir kvöldmat! En Prins svaf - og tók ekki eftir heimsókninni................. lélegt!

4 Comments:

At 04 desember, 2006 15:12, Anonymous Nafnlaus said...

Plins var freyttur...
Og Ranald vill fá hundinn sinn aftur ;)

 
At 09 desember, 2006 14:20, Blogger GHH said...

Gefa henni að borða??? Ertu from yourself?

Ég held með Grella í Fuffu-málum!

 
At 09 desember, 2006 21:33, Blogger Ingibjörg góða! said...

Þú heldur bara með honum - af því að þið eruð bæði með svo lítið kok!

Tom Hanks!

 
At 11 desember, 2006 00:21, Blogger GHH said...

*hóst* *hóst*
Já, ætli það sé ekki ástæðan. Sérstaklega í ljósi þess að mýs eru svo rosalega krúttlegar.... bara svolítið misskildar.

 

Skrifa ummæli

<< Home