mánudagur, júní 20, 2005

Vöfflujárn...........

Haldið þið ekki að gamla vöfflujárnið hafi endanlega gefið upp öndina á sunnudaginn var. Það var úrskurðað látið - á staðnum - en jarðarförin verður auglýst síðar.
JAX aumkaði sig yfir "bakarameistarann" (sem hafði farið með "Æðruleysisbænina" eins og keðjusöng í ca. hálftíma) og ætlar að kaupa nýtt vöfflujárn fyrir mína! Vei vei vei..........
Ég veit þó - þó JAX sé góðmennskan uppmáluð - og hinn besti vinur - þá liggja einhverjar eiginhagsmunalegar ástæður að baki gjöfinni. Hann mun alltaf vera velkomin í vöfflur á Þinghól.............