mánudagur, júlí 17, 2006

Fallegasta og besta systir i heimi......

á afmæli í dag!!

Mér skilst að þessi dagur (og dagurinn á undan og á eftir) sé kallaður: Hinn íslenski afmælisdagur.

Til hamingju með daginn - elsku Hjördís systir mín.

laugardagur, júlí 01, 2006

Dagurinn i dag.....

það er sól í Skorradalnum. Skrítið að sjá hvernig skýin liggja í kringum dalinn - en virðast ekki komast alla leið yfir vatnið. Þess vegna erum við hérna í sólinni - þó það rigni í kringum okkur.
Greyið Prins er búin að fá að finna fyrir því að "mamma" hans er hætt að reykja. Ég var vön að reykja mikið þegar ég var að semja texta - en í dag tók ég göngutúra í staðinn fyrir sígarettur. Þannig að Prins er "genginn upp að öxlum" og situr núna með tunguna lafandi, þreyttur og þyrstur.

En mér er alveg sama - búin að semja 2 texta í dag - og Prins má vara sig - ég ætla nefnilega að semja einn enn á morgun!

Við Prins fitnum ekki á meðan..................