miðvikudagur, ágúst 24, 2005

Florida í næstu viku............

Núna þegar ég ætti að vera að leita að vinnu - ok fer bráðum að vinna í því - þá er ég og minn á leiðinni til Orlando að hitta Patriciu og Hlyn. Hlakka til að hitta þau og velta fyrir mér (okkur) smá business. Hver veit - kannski flyt ég til Florida og verð orðin skemmtilega fjólubláhærð eftir nokkra mánuði. Ekki líklegt...........
Var að velta fyrir mér hvað sumarið er búið að vera þæginlegt. Mikið er gott að vera ekki að vinna í nokkra mánuði. Ætli ég nenni nokkuð að fara að vinna aftur. Verð bara heimavinnandi húsmóðir - eða ekki.
Búin að taka upp verslunarmáta Petreu og er að ná meistaragráðu í Ebay.com. Þetta er auðvitað snilldar verslunarmáti - sérstaklega fyrir konur eins og mig, sem finnst ekki gaman að vera í búðum!